About Me
- Pascal Pinon
- Pascal Pinon consists of twins Ásthildur & Jófríður from Reykjavík, Iceland. Together they play low-fi indie acoustic pop in their bedroom. Welcome to this little blog with various things, interesting and not so interesting at all.
Monday, December 5, 2011
Friday, November 11, 2011
ferðasaga
Halló halló,
þökk sé Kraumi tónlistarsjóði (www.kraumur.is) gátum við, 17 ára tónlistarkonurnar (og pabbi á mixernum), ferðast yfir hálfan hnöttinn til að spila og syngja fyrir kínversku þjóðina. Eftir mikinn undirbúning og oft á tíðum vafa um hvort ferðin myndi yfir höfuð eiga sér stað, var allt komið á hreint. Visa, performance license og auðvitað flugmiðarnir. Svo við fórum í flugrútuna kl.5 og svo á Leifsstöð á fimmtudagsmorgni 27.október. Við flugum til Parísar, biðum þar í 10 klukkutíma og flugum svo til Shanghai um nóttina. Alveg helluð lentum við á Pudong og þar beið okkar Julia Yu, tour manager og túlkur. Við vorum svo helluð að við gleymdum einni töskunni á flugvellinum, en sem betur fer föttuðum við það nógu snemma svo það var ekki nema klukkutími sem fór í að sækja hana aftur. Fall er faraheill hugsuðum við og keyrðum og keyrðum þar til við vorum komin til Hangzhou. Við tékkuðum okkur inn á hótelið og fórum beint að sofa.
Daginn eftir voru fyrstu tónleikarnir. Þeir voru á West Lake festival og við vöknuðum snemma til að keyra í sándtékk. Festivalið var mjög stórt, en á allri hátíðinni mættu 16.000 manns. Á tónleikunum okkar voru 1000-2000 manns og það gekk alveg eins og í sögu.
Það kom okkur á óvart hvað kínverjarnir voru allir gríðarlega spenntir að taka af sér mynd með okkur en við vorum, eftir tónleikana, í klukkutíma að árita diska og brosa á myndum með hinum og þessum aðdáendum.
Daginn eftir áttum við ævintýralega upplifun í Hangzhou, en þá fórum við á veitingastað uppi á fallegu fjalli og pöntuðum þar alskonar framandi rétti. Með okkur í mat var promoterinn og maðurinn sem gerði þennan túr að veruleika, Ni Bing.
Eftir það fórum við að skoða sögulegt stöðuvatn í nágrenninu og sigldum um vatnið. Julia sagði okkur alskonar kínverskar þjóðsögur sem voru sprottnar upp frá þessum stað, og við skoðuðum fræga minnisvarða/styttur sem er að finna á seðlinum þeirra
Daginn eftir það flugum við til Guangzhou. Þar var veðrið ótrúlegt gott og við, Íslendingarnir, í algjöru sjokki yfir þessu hlýja októberloftslagi.
Um kvöldið spiluðum við á tónleikum í Guangzhou og af því að það var var hrekkjavaka þá ákváðum við að vera með grímur í einhverjum lögum.
Daginn eftir keyrðum við til Shenzen. Fyrst komum við á hótelið en við gátum ekki stoppað lengi þar því við þurftum næst að keyra þangað sem tónleikar kvöldsins áttu sér stað. Algjörlega óafvitandi enduðum við á frönskum veitingastað lengst í úthverfi Shenzen borgar þar sem allar konurnar voru með Chanel töskur og karlarnir reykjandi vindla.
Það var samt þannig að þetta var líka viðurkenndur tónleikastaður, þótt við höfum aldrei séð annað eins, og mjög margir gestir kæmu þangað til þess að uppgötva nýja tónlist. Á tónleikunum var líka kynnir, en það hafði ekki verið þannig áður á túrnum, og hann kynnti okkur eftir fyrsta lagið og svo aftur eftir annað lagið. Það var mjög súrrealísk stund þar sem hann stóð og benti á okkur og talaði og talaði og fólkið hló og á meðan höfðum við ekki hugmynd um hvað hann var að segja. Við hlógum svo mikið eftirá að það var erfitt að spila í næstu lögum.
Næsta dag (þá er kominn 2.nóvember), ákváðum við að skoða bæinn og fórum á risastóra verslunargötu. Af því það var svo gott veður fengum við okkur ís.
Um kvöldið spiluðum við á klúbbi sem var í sömu byggingu og hótelið okkar. Hann heitir True Color Club og þar var fólk búið að safnast saman áður en við áttum að spila. Af því það var svo mikill hávaði í fólkinu ákváðum við að hækka rosalega mikið í okkur, svo að við stelpurnar þurftum að vera með eyrnatappa. Þessi hljóðstyrkur sagði Julia samt að væri mjög eðlilegur.
Daginn eftir vöknuðum við eldsnemma til þess að fljúga til Shanghai, lokaáfangastaðar í ferðinni.
Við tékkuðum okkur inn á hótelið og fórum svo að skoða bæinn.
Við lentum í því að týnast á háannatímanum og urðum þess vegna of sein í kvöldmat með Ni Bing. Af því það var engan leigubíl að fá kom hann bjargvættur á leiguvespu og við fórum út að borða.
Daginn eftir var tónleikadagur. Við fengum far í lúxus Mercedes Benz bílum á tónleikastaðinn, sem var í sal í sama húsi og risa risa Mercedes Benz arena. Það kom í ljós að er vinnustaður Ni Bing, sem sér líka um stóra stóra salinn. Við sándtékkuðum og fengum svo sérherbergi til að hafa okkur til.
Tónleikarnir gengu eins og í sögu en í salnum, sem líkist meira leikhúsi en tónleikastað, var allt til alls og sándið sérlega gott. Þetta voru seinustu tónleikarnir á túrnum.
Við komumst að því að daginn eftir voru Akon tónleikar á risa arenanu og spurðum Ni Bing hvort hann gæti útvegað miða. Okkur til mikillar gleði var það minnsta mál í heimi svo að daginn eftir fórum við á tónleika með þessum mikla keisara, sem við vorum allar aðdáendur að í 6.bekk, og skemmtum okkur konunglega.
Síðasta daginn okkar fórum við á antíkmarkað, skoðuðum borgina og fórum í frægt musteri þar sem við borðuðum heimsfræga dumplinga (þurftum að bíða í röð í 40 mínútur).
Þetta var með sanni æðisleg ferð og við viljum aftur þakka Kraumi fyrir að gera hana að veruleika.
Allar heimsins bestu kveðjur!
Pascal Pinon

Monday, October 17, 2011
KEXP recordings
woohoo! check this out from iceland airwaves, jófríður & ásthildur playing new songs
CLICK HERE
CLICK HERE
Wednesday, September 28, 2011
TOUR DATES!!
Oct, 13th/15th: Iceland Airwaves Festival / Reykjavík (IS)
Oct, 29th/30th: West Lake Music Festival / Hangzhou (CH)
Oct, 31st: C-Union Bar / Guangzhou (CH)
Nov, 1st/2nd: True Color Club / Shenzhen (CH)
Nov, 3rd: Yugongyishan / Beijing (CH)
Nov, 4th: The Mixing Room & Muse / Shanghai (CH)
Nov, 20th: Schokoladen / Berlin (DE)
Nov, 21st: Cafe Wagner / Jena (DE)
Nov, 22nd: Rationaltheater / Munich (DE)
Nov, 24th: Blue Bird Festival / Vienna (AT)

Saturday, July 30, 2011
a little update
i thought i'd give a little update, just for the fun of it.
so all the recordings we have been doing at home aren't going to be published. we are sorry for that. we have decided to record the sophomore album with alex somers, as producer, in his home studio. we recorded a few demos with him last weekend and they sounded excellent so that is something to look forward to! unfortunately it won't be out until next year, summer or fall. i hope you all can cope, even if it's a long time. we promise it's going to be worth it! instead we have decided to be better at blogging and touring and posting more videos. also we have a website under construction; pascalpinon.com (how cool is that!?)
until next time,
lots of love
jófríður (and ásthildur who is with you in mind)

Tuesday, April 19, 2011
Monday, April 18, 2011
hey!
Sunday, January 16, 2011
lyrics 4 everyone
heyhey,
here are lyrics with translations that i put together by request from our friend florian. i will post more l8er and there is also something on our myspace blog.
have the nicest :)))))
-jófríður
Moi
Og mitt mál
er horfið
horfið sjónum
í burt nú
í dag er ég þriðjudagur
ei frídagur
nei
staðir þangað sem við fórum
lokuð augun
ekkert meir
myndavél
tekur myndir
af þér og moi
ég á myndir, minningar
af þér og moi
And my matter
has disappeared
from my sight / to the sea (means the same thing in icelandic)
away now
today I am tuesday
not a holiday
no
places where we went
closed eyes
nothing more
a camera
takes photos
of you and moi
I have photos, memories
of you and moi
(these lyrics were written by ásthildur and me. she wrote something first that i then added to without really knowing what it was about. but then i imagined this was about loosing somebody and being really depressed going through old photos of this person. moi was our favorite word at the time and we thought it was really funny to replace me with moi. i don't think it's that funny anymore though.)
Sandur
Að vera einn út á engi
með einum manni og einni kind
að finna þyt í laufum
að finna ferskan vind
ég er hér en þú ert þar
og samtök væru synd
ó viltu hætta að níðast á mér
með þinni orkulind.
Stundum er ég einmana
og vil þá fara heim
á stjörnubjartri nóttu
ég horfi út í geim
vorið er og vorið var
alltaf á leiðinni
ó viltu hætta að segja mér
frá fortíðinni.
Að lifa á þessu landi
það eru fríðindi
hvers má maður gjalda
fyrir þau hlunnindi?
frumvarpið og andvarpið
með öll sín blíðindi
ó viltu ekki hafa af mér
öll mín réttindi.
Hvar er heitt og hvar er kalt
en hvar er hvorki né?
Ég skrifaði á hend mína
nú húðlit hvergi sé
ég hef unnið ég hef unnið
hvenær fæ ég hlé?
ó viltu ekki drepa hann
drepa hann E.T.
To be alone out on a field
with one man and a sheep
to feel the sound of leaves
to feel the fresh wind
I am here and you are there
and collaboration would be a shame
oh would you stop hurting me
with your energy source.
Sometimes I am lonely
and want to return home
on a star bright night
I look up to outer space
the spring is and the spring was
always on its way
oh would you stop telling me
about the past.
To live on this land
is a privilege
how should one suffer
for those benefits?
The bill and the sigh
with all their sweetness
oh would you not betray me
of all my rights.
Where is warm and where is cold
and where is neither
I have written on my hand
and can't see the skin color
I have worked I have worked
when will I get a break?
Oh would you not kill him
kill E.T.
(this song is about school and i wanted to call it school but the girls wouldn't allow me. my class was called 10.ET and the E.T. reference in the end is to that. it's about how school is bad and boring and it's easier to see it if you speak icelandic but it also says in the last line: please don't kill him, which means it's bad but it's also good even if you don't talk about that all the time. i hope you get it but it makes sense if it makes no sense.)

Subscribe to:
Posts (Atom)